Það voru Grene systurnar tvær sem opnuðu Søstrene Grene í Árósum árið 1973. Til að byrja með var frekar erfiður aðgangur að versluninni sem var á annarri hæð þar sem áður var bakarí.
Hugmyndin að lága verðinu vaknaði frá þeirri hugmynd að það þyrfti eitthvað sérstakt til að fá fólk til að koma upp brattar tröppurnar í verslunina á annarri hæð.
Søstrenen Grene var þannig fyrsta lágvöruverslunin í Danmörku og strax frá fyrsta degi var þetta verslun sem var frábrugðin fjöldanum.
Þá var vöruúrvalið (að mestu leyti) dæmigerðar partívörur eins og kaffi, snaps og þess háttar.
Síðar jókst metnaðurinn og það var meira hugsað um þá fallegu framsetningu sem í dag einkennir Søstrene Grene.
Þetta gerðist m.a. af því að það var byrjað að flytja inn vörur frá öllum heimshornum og þá sér í lagi hluti til heimilisins sem kröfðust betri framsetningar.
Hugmyndin um verslunina sem markað kom fram mjög snemma. Innblásturinn var fenginn frá mörkuðum við Miðjarðarhafið þar sem fólk býður fram vörur sínar í heillandi og líflegu andrúmslofti lita, lyktar og hljóða.
Til að skapa sömu áhrif var búðin byggð þannig upp að vöruútstillingarnar voru færanlegar og vörunum blandað saman eftir fagurfræðilegu sjónarmiði fremur en vörusamhengi eins og gert er í öðrum verslunum. Samspil ljóss og skugga var annað sem var notað til að gefa svip og stíl.
Vörurnar voru sýndar í þeim trékössum sem þær komu í og ekki pakkað í umbúðir þannig að viðskiptavinirnir fengu tækifæri til að koma við vörurnar og talsverður umbúðakostnaður sparaðist.
Árið 1989 hófst svo nýtt tímabil fyrir systurnar tvær með opnuninni á tveimur nýjum verslunum, í Álaborg og Herning í það skiptið. Í millitíðinni hafði partívörunum verið skipt út fyrir vel valdar vörur frá öllum heimshornum.
Stefnan var (og er enn): að kaupa beint af framleiðandanum í miklu magni til að ná fram lægsta mögulega verðinu. Önnur mikilvæg skilyrði sem allar vörurnar þurfa að uppfylla eru varðandi fagurfræði og gæði.
Í dag eru Søstrene Grene verslanir um alla Danmörku og fyrstu verslanirnar fyrir utan Danmörku eru í startholunum.