  


 |
       |
|


Ef eitthvað stríðir þér þegar þú opnar sýningarsal, eða ef þú ert í vafa um eitthvað sem snýr að listamannaklúbbnum, getur þú hugsanlega fundið svar við spurningum þínum hér. |
|

Hvernig hljóta málverkin mín samþykki?
Safnvörðurinn þarf að samþykkja öll málverk sem sett eru upp í Listamannaklúbbnum. Hann er venjulega fljótur að þessu – en á annatímum, þegar mörg málverk eru send inn til sýninga, getur þetta hæglega tekið allt að 1-3 virka daga.
Málverkin mín fá synjun?
Kannaðu hvort þú hafið skorið myndina af málverkinu þína rétt, þannig að það sé ekki annað en léreftið sjálft sem sést á myndinni.
Af hverju kem ég ekki myndinni af málverkinu mínu inn?
Ef til vill er myndin of stór. Myndin má ekki vera stærri en 1 MB.
Málverkið mitt er sérstakt í lögun, get ég sett það inn?
Við fáum öðru hvoru fyrirspurnir um hvort hægt sé að setja upp málverk í Listamannaklúbbinn sem eru óvanaleg í lögun. Kerfið og tæknin á bak við heimasíðuna gefur aðeins kost á að vinna með ferköntuð málverk. Það er þess vegna því miður ekki hægt að taka við myndum af málverkum sem hafa sérstaka lögun, þar sem þau málverk sem tekið er við þarf að skera þannig að ekki sé hvítur bakgrunnur eða rammi í kringum myndirnar.
Af hverju sé ég ekki sýningarsalinn minn á upphafssýningunni?
Á upphafssýningunni sjást alltaf 30 nýjustu sýningarnar. Þar sem það koma margar nýjar sýningar á hverjum degi, eru takmörk fyrir hversu lengi þær staldra þar við. Hægt er að nota leitarvélina til að finna sýninguna þína á Aðalsýningunum.
Ég er nýbúin að skrá málverkið mitt í keppnina - af hverju sé ég það ekki?
Ef þú skráir málverkið þitt í samkeppnina fyrir 25. dag mánaðarins tekur það þátt í samkeppni í næsta mánuði á eftir. Þetta er gert svo hægt sé að kjósa jafnlengi um öll málverk.
Má ég stofna sýningu þó ég búi ekki í Danmörku?
- Já, það eru allir velkomnir í Listamannaklúbbinn, óháð því hvar í heiminum þeir búa.
Hvernig finn ég mína sýningu á aðalsýningunum?
Þar sem það eru fleiri þúsund sýningar í Listamannaklúbbnum, er auðveldast að finna þína sýningu með því að nota leitarvélina.
Hvernig skipti ég um andlitsmynd
- Opnaðu aðganginn þinn að þinni sýningu. Veldu „breyta upplýsingum”. Veldu síðan „Hlaða niður sjálfsmynd” og nú getur þú valið nýja ljósmynd á tölvunni þinni.
Spurningar um vörur frá Søstrene Grene.
Öllum fyrirspurnum um vörur frá þeim Önnu og Clöru skal beina til næstu Søstrene Grene verslun.
Hvernig segi ég upp áskrift að fréttabréfi frá Søstrene Grene?
- Farðu í „Fréttabréf” á valstikunni og veldu þar „Segja upp áskrift”. Mundu að skrifa það netfang í reitinn sem þú óskar að segja upp áskriftinni á.
Ef spurningar vakna varðandi heimasíðuna eða ef það koma upp tæknileg vandamál - hafðu þá samband við:
Webmaster
|
|

|
|
|
|
 |
| |
|